- Nám og Námskeið
- Alþjóðlega vottað Markþjálfanám
- Þjálfun og námskeið fyrir fyrirtæki
- Greiningar og Upplýsingar
- Þetta erum við
- Vefverslun
Karfan er tóm
Hvaða stjórnandi vill ekki sjá teymið sitt blómstra og afkasta af eldmóð?
Ef teymið er hins vegar ekki þar, eitthvað er að, eða það bara gæti verið að gera aðeins betur - þá gæti teymisþjálfun verið einfaldasta og ódýrasta lausnin!
Tilgangur teymisþjálfunar er að valdefla teymi á þann hátt að meðlimir þess vilji og geti nýtt sér þá þekkingu, reynslu og hugmyndir sem þeir sjálfir hafa fram að færa. Með verkfærum teymisþjálfunar eru þeir valdefldir á þann hátt að þeir sameinist um að bera saman ábyrgð á framvindu verkefna, bættum árangri og aukinni vellíðan.
Hvort sem verkefni snúa að því að leysa vandamál, sækja tækifæri, auka þekkingu, skipuleggja verkefni eða byggja upp betri starfsanda, þá er teymisþjálfun gríðarlega áhrifarík leið til þess að ná árangri. Það er um að gera að skoða málið nánar ef að þú og teymið þitt vill eitthvað af eftirfarandi:
Teymisþjálfarar Profectus búa yfir margra ára reynslu af samstarfi við stjórnendur og starfsfólk fyrirtækja og að hafa sjálf leitt farsæl teymi. Teymisþjálfun byggir á sannreyndum og markvissum aðferðum sem ætlað er að tryggja árangur gagnvart þeim áskorunum sem staðið er frammi fyrir.
Við nálgumst verkefnið með markvissum hætti og gerum í upphafi þarfagreiningu og eða raunstöðumat. Við sníðum þjálfunina síðan beint að þörfum teymisins og þeim þáttum sem mikilvægastir eru til að skila mestum árangri. Þannig náum við að stuðla að hámarksárangri hverju sinni.
Hafðu samband og við aðstoðum þig.