Hvað fannst fyrrverandi nemendum um námið?
Námskeiðið var frábært. Námið fór langt fram úr væntingum og mun nýtast í leik og starfi mínu sem stjórnandi. Ég hafði hugsað um þetta í nokkurn tíma að fara í markþjálfanám og er mjög ánægð með að hafa farið í námið hér. Ég hlakka til næstu skrefa með hópnum.
Lærði mjög margt um sjálfan mig og fékk afar gott verkfæri til að nota í vinnu minni sem félagsráðgjafi. Ég mæli með þessu námi fyrir alla sem eru að vinna í markmiðasetningu eða við hjálp til sjálfshjálpar með öðru fólki.
Þetta markþjálfanám hjá Profectus hefur breytt lífi mínu. Ekki aðeins hef ég lært að þekkja sjálfan mig upp á nýtt heldur eru viðskiptavinir mínir einnig að ná mun meiri árangri en áður.
Efir markþjálfanámið hjá Profectus hef ég lært að hlusta meira og tala minna. Sem sálfræðingur hef ég náð dýpri tengingu við skjólstæðinga mína og þeir taka nú meiri ábyrgð á eigin bataferli.
Kraftmikið námskeið sem gaf mér fullt af nýjum verkfærum í kistuna. Verkfærum sem ég get nýtt í starfi og einkalífi. Ég lærði aðferð sem er mun áhrifaríkari en þær leiðir sem ég hef notað til þessa við að hvetja aðra áfram í starfi.
Frábært nám. Hnitmiðað. Fær mann til að vilja læra meira og kynna þetta fyrir sem flestum. Mjög öflugt samskiptaform.
Námskeiðið var frábært! Ég geng út með fullt af ástríðu og eldmóð, með stútfulla verkfæratösku sem mun nýtast mér vel í leik og starfi. Umgjörð og skipulag námskeiðsins var til fyrirmyndar, alveg upp á 10! Ég lærði mikið inn á og um sjálfa mig sem er ekki síður mikilvægt í þessu ferli.
Námskeiðið kemur til með að nýtast mér á svo margan hátt, bæði hvað varðar vinnu og einkalíf. Frábært verkfæri til að horfa á hlutina á annan fátt. Ég sé fyrir mér að nýta þetta til að efla liðsheild og innleiða nýja starfsmenn að teyminu.
Markþjálfanámið hefur gefið mér gríðarlega margt:
-
Aðferðin er afar góð og árangursrík.
-
Sjálfsþekkingin er meiri hjá sjálfri mér sem gerir að verkum að árangurinn verður meiri.
-
Ég hef náð að skilja og tileinka mér markþjálfahlutverkið þannig að ég get nýtt það til að hjálpa öðrum.
-
Markmiðasetning verður auðveldari
-
Námið hefur eflt sjálfsvitund mína og minna markþega
-
Öll verkfærin sem okkur voru færð eru afar góð og nýtileg.
-
Gaman að læra, ögra sér og varða framtíðina.
-
Þetta námskeið hefur nú þegar haft veruleg, jákvæð áhrif í mínu lífi.